23.1.2009 | 08:55
Stoltur Íslendingur!
Í dag er ég stoltur Íslendingur - ég er svo stolt af öllu fólkinu sem sagði nei við ofbeldi og skemmdarverkum! Ég er sérstaklega stolt af þeim sem tóku af skarið í fyrri nótt og stilltu sér upp fyrir framan lögreglumenn til að skýla þeim fyrir grjótkastinu. Okkur finnst það kannski sjálfsagt, en það hefur krafist gífurlegs hugrekkis af hálfu þessa hóps - að stíga út úr fjöldanum, þar sem andrúmsloftið hefur eflaust verið rafmagnað, að þora að stíga fram gegn ofbeldisseggjum í ham og segja "hingað og ekki lengra".
Appelsínugula hreyfingin er auðvitað sprottin af þessu - fólk vill mótmæla og finnst rétt að mótmæla, en ekki með ofbeldi og skemmdarverkum! Ég er líka ánægð með viðbrögð lögreglunnar, að minnka viðbúnaðinn verulega og hverfa síðan nánast úr sjónmáli. Hávaðinn var engu að síður mikill og fólk kom sínum skoðunum á framfæri - þessu er mikilvægt að halda áfram, að sofna ekki á verðinum!
Ég fann ekki appelsínugulu slæðuna sem ég á einhversstaðar inni í skáp, leita betur í dag, held ég hafi hana bara um hálsinn næstu daga. Ég hef ekki tök á að skunda til höfuðborgarinnar til að taka þátt, svo ég stunda þögul mótmæli heima í stofu
Friðsamleg mótmæli í nótt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.